Útboð - Grunnskólinn í Hveragerði - Viðbygging áfangi 3
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Grunnskólinn í Hveragerði – Viðbygging áfangi 3
Verkið felst í byggingu viðbyggingar við Grunnskólann í Hveragerði. Viðbyggingin verður staðsett vestur af núverandi skóla við Skólamörk 6, 810 Hveragerði. Byggingin er staðsteypt á tveimur hæðum ásamt lagnakjallara, um 1120m2 brúttó stærð gólfflatar.
Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu byggingarinnar og fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt lóðafrágangi.
Verkkaupi mun á verktíma leggja áherslu á vandaða umgengni um framkvæmdasvæðið
Verklok eru 15.08.2024
Nokkrar magntölur eru eftirfarandi:
- Losun á klöpp 760m3
 - Uppgrafið efni 2.160m3
 - Fyllingar 1.600m3
 - Mótasmíði 3.140m2
 - Steinsteypa 510m3
 - Bendistál 55.800kg
 - Utanhúss klæðning 130m2
 - Þakfrágangur
- Viðsnúið þak 155 m2
 - Uppstólað þak 180 m2
 - Timburþak yfir sal 340 m
 
 - Dúklögð gólf 680m2
 - Frárennslislagnir 760m
 - Gólfhitalagnir 4.120m
 - Snjóbræðslulagnir 1.050m
 - Vatnsúðakerfi 970m
 
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 15.02.2023. Senda skal beiðni um útboðsgögn á netfangið thordur.kristjansson@efla.is og gefa upp nafn bjóðanda, kennitölu, heimilisfang, síma og netfang.
Tilboðum skal skila til bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði, fyrir kl. 14:00, miðvikudaginn 15.03.2023 þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsvefur.is - Grunnskólinn í Hveragerði - Viðbygging áfangi 3