Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá Hveragerðisbæ vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofu Hveragerðisbæjar við Breiðumörk 20 í Hveragerði frá og með 4. maí nk.

Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 – 15:00 og föstudaga frá 10:00 til 12:00.

Til að geta kosið þarf kjósandi að sýna fram á að hann sé sá sem hann segist vera.

  • Best er að koma með skilríki með mynd á kjörstað, t.d. ökuskírteini eða vegabréf, til þess að kjósandi geti gert grein fyrir sér.
  • Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar. Þau eru núna aðgengileg í Ísland.is appinu.

Upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar á island.is

F.h. bæjarstjórnar Hveragerðis, Pétur G. Markan, bæjarstjóri.



Síðast breytt: 4. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?