Fara í efni

Úrslit í Snjall jólaratleik

Snjall jólaratleikurinn gekk vel í desember og voru um 60 lið sem kláruðu leikinn. Þátttakendur í hverju liði voru frá 1 til 5. Þrjú efstu liðin fá gjafabréf sem má nýta hjá þjónustuaðilum bæjarins.

Þau Arna, Bjarni, Viktoría og Hrafntinna í Dynskógum 8, enduðu sem sigurvegarar. Þau svöruðu öllum 15 spurningunum rétt og kláruðu leikinn á 25 mínútum og 27 sek. Innilega til hamingju og það bíður ykkar 10 þúsund kr. gjafabréf í móttöku Hveragerðisbæjar.

Í öðru sæti voru þau Gunnsi og Kría í Snjallsveitó og fá þau 7500 kr gjafabréf og í þriðja sæti var Hrefna Ósk, Kambahrauni 58 en hún fær 5000 kr gjafabréf.


Síðast breytt: 4. janúar 2021
Getum við bætt efni síðunnar?