Upplýsingar um kjörfund í Hveragerðisbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026
Kjörfundur í Hveragerði vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst 2026 hefst kl. 9:00 og lýkur þann sama dag kl. 22:00 þann dag. Kosið verður í tveimur kjördeildum í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk 6.
Kjósendum er raðað í kjördeildir eftir heimilisfangi og er heimilisföngum raðað í stafrófsröð.
Í kjördeild 1 kjósa þau sem hafa heimilisfang frá Aldinmörk til Heiðmarkar, þau eru með ótilgreint heimilisfang og þau sem búa erlendis og njóta kosningaréttar í Hveragerði.
Í kjördeild 2 kjósa þau sem hafa heimilisfang frá Helluhrauni til Öxnalækjar.
Kjósendur geta nálgast upplýsingar um hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár www.skra.is. Hlekkur er aðgengilegur hér.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi er í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk 6.
Aðgengi að kjörstaðnum í Gunnskólanum í Hveragerði.
Inn á kjörstaðinn er gengið um aðalinngang, vestan megin, við íþróttahúsið, sjá mynd.
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er norðan megin við húsið. Sérstaklega merkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða eru við innganginn sem snýr til norðurs.