Fara í efni

Uppbygging og leiga íþróttamannvirkja í Hveragerði

Fyrirhuguð staðsetning gervigrasvallar í Hveragerði
Fyrirhuguð staðsetning gervigrasvallar í Hveragerði

Meirihluti bæjarráðs samþykkti á fundi sínum í dag 10. ágúst að byggja gervigrasvöll í fullri keppnisstærð.

Völlurinn verði upphitaður og upplýstur og staðsettur inni í Dal eins og gert er ráð fyrir í skipulagi bæjarins. Áætluð verklok eru haustið 2024.

Einnig samþykkti meirihluti bæjarráðs að leigja, til þriggja til fimm ára, 700 fermetra atvinnuhúsnæði fyrir æfingar inniíþrótta.

Fundargerð 813. fundar bæjarráðs má sjá hér


Síðast breytt: 10. ágúst 2023
Getum við bætt efni síðunnar?