Fara í efni

Sumarstörf Hveragerðisbæjar fyrir ungmenni með skerta starfsgetu

Sumarstörf Hveragerðisbæjar fyrir 16-20 ára ungmenni með skerta starfsgetu 2026

Hveragerðisbær auglýsir eftir umsóknum um sumarstörf fyrir ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og þarf starfsþjálfun og stuðning í starfi. Um er að ræða störf sem henta einstaklingum á aldrinum 16-25 ára með skerta starfsgetu. Lögð verður áhersla á að veita viðeigandi leiðsögn og aðlaga vinnu að getu hvers og eins.

Eftir að umsókn berst verður í samvinnu við ráðgjafaþroskaþjálfa fundið hentugt starf innan sveitarfélagsins fyrir hvern umsækjanda. Hægt er einnig að setja ósk um starf og/eða stafsstöð í umsóknaferlinu. Vinnutími getur verið eftir samkomulagi á dagvinnutíma, t.d. ef um er að ræða hlutastarf.

Skilyrði er að umsækjendur hafi lögheimili í Hveragerði.

Opið verður fyrir umsóknir 28. apríl - 20. maí. Sótt er um í gegnum Íbúagátt Hveragerðisbæjar undir umsóknum í málaflokki mannauðsmála.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningum FOSS.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband við móttöku bæjarskrifstofunnar, s. 483 4000 eða með því að senda tölvupóst á mottaka@hveragerdi.is.

 


Síðast breytt: 28. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?