Fara í efni

Stafræn sundkort í Sundlaugina Laugaskarði

Stafræn sundkort eru komin í loftið fyrir íbúa og gesti Sundlaugarinnar Laugaskarði. Hægt er að kaupa staka miða, 10 og 30 miða kort og ½ árs og árs kort. Í stað þess að fá kort í hendurnar sækir fólk stafrænt kort og setur það í snjallsímann sinn.

Til að kaupa kort þarf að fara inn á laugaskard.is eða skanna QR kóðann sem er á myndinni hér að ofan, velja hvaða kort skal kaupa og fara síðan í gegnum greiðsluferli til að greiða fyrir kortið. Þegar kort (önnur kort en stakir miðar) eru keypt þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Athugið að börn 17 ára og yngri og 67 ára og eldri geta sótt kort sér að kostnaðarlausu. Til að sækja kortið í símann þurfa Android notendur að sækja appið "SmartWallet" í Google Play en Iphone notendur fá kortin inn í Wallet hjá sér, á sama stað og bankakort og stafræna ökuskírteinið er að finna. Síminn er opnaður, kortið borið að skanna í afgreiðslu sundlaugar og þá ertu velkominn í sund.

Sjáumst í sundi

 


Síðast breytt: 26. apríl 2022
Getum við bætt efni síðunnar?