Fara í efni

Snjómokstur

Eins og bæjarbúar hafa ekki farið varhluta af er færðin ekki góð, þetta á við bæði við hér í Hveragerði og eins á vegum í kringum okkur. Starfsmenn bæjarins og verktakar eru með allar vélar úti til að halda opnu. Við viljum hvetja fólk til að halda ferðum á bílum, aðalega litlum bílum, í lágmarki þar sem það getur tafið mikið fyrir mokstri ef þeir festast á götunum.

Vegna anna hjá starfsmönnum áhaldahússins verður gámasvæðinu lokað í dag. Sýnum starfsmönnum í snjómokstri tillitsemi og vonandi förum við að komast í gegnum þennan „skafl“ fljótlega.


Síðast breytt: 19. desember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?