Fara í efni

Ungmennaráðstefna Ungmennaráðs UMFÍ

Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst.

18. – 20. september 2026
📍 Skólabúðir UMFÍ að Reykjum í Hrútafirði

Hvernig getum við skapað samfélag þar sem ungt fólk fær að blómstra?
Hvernig styrkjum við andlega, líkamlega og félagslega heilsu — bæði á netinu og í raunheimum?
Á ráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa kemur ungt fólk alls staðar af landinu saman til að ræða það sem skiptir máli, kynnast nýju fólki, taka þátt í vinnustofum, hlusta á áhugaverða fyrirlestra og hafa gaman saman.

💬 Opnar umræður
🎤 Fyrirlestrar og vinnustofur
🤝 Ný tengsl og upplifanir
🧠 Um skjánotkun, samfélagsmiðla, sjálfsmynd, tengsl og vellíðan
🔥 Stemning, samvera og kraftur

Viðburðurinn er ætlaður ungu fólki á aldrinum 15 – 25 ára og þátttaka er á eigin forsendum. Enga reynslu eða sérstaka þekkingu þarf — bara áhuga á að taka þátt og eiga góða helgi með öðrum ungmennum.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Skráning er opin hér: https://forms.gle/Aw4QHZctFSz57nHN9 👀
Allar nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu UMFÍ: https://www.umfi.is/vidburdir/ungt-folk-og-lydheilsa/
Viðburðurinn er styrktur af Erasmus+

Síðast breytt: 26. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?