Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 14. september að ráða Sigríði Hjálmarsdóttur sem menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi hjá Hveragerðisbæ.

Starfið var auglýst 29. júní 2023. Alls bárust tuttugu og sex umsóknir um starfið, þrír drógu sig til baka og voru tuttugu og þrjár umsóknir metnar.

Sigríður hefur starfað sem framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju frá árinu 2018 til dagsins í dag. Á árunum 2015 til 2018 var Sigríður menningar- og markaðsfulltrúi Grundafjarðarbæjar. Sigríður hefur einnig starfað sem þýðandi, stundakennari við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, sem ráðgjafi á sviði samskipta, viðburðarstjórnunar og almanntengsla, sem blaðamaður, fréttastjóri og æskulýðsfulltrúi.

Bjóðum við hana velkomna til starfa.


Síðast breytt: 18. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?