Fara í efni

Pálmi Geir er íþróttamaður Hamars 2020

Pálmi Geir Jónsson körfuknattleiksmaður var kjörinn íþróttamaður Íþróttafélagsins Hamars 2020 á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 7. mars 2021.
Pálmi Geir er einn af burðarásum í meistaraflokksliði Hamars í körfubolta sem nú berst um efstu sætin í 1. deildinni  í Íslandsmóti KKÍ.  Í umsögn við afhendinguna kom eftirfarandi  fram,  "Pálmi Geir er einn reyndasti maður Meistaraflokks Karla í körfuknattleik hjá Hamri þrátt fyrir að hafa fyrst gengið í raðir Hamars á síðasta tímabili og er hann jafnframt fyrirliði liðsins.  Pálmi Geir er afburða leikmaður sem er alltaf tilbúinn að leggja sig 100% fram til þess að liðið nái góðum árangri.  Hann er góð fyrirmynd jafnt innan sem utan vallar fyrir bæði liðsfélaga og þá sem yngri eru.  Hann er alltaf tilbúinn að leiðbeina sem þeim yngri er og er það ómetanlegt að hafa innanborðs mann með viðlíka reynslu og hann hefur. ” 

Fjórir aðrir íþróttamenn fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu og voru í kjöri til íþróttamanns Hamars:

Margrét Guang Hu, badmintonkona
Jakub Madej, blakmaður
Karen Inga Bergsdóttir, knattspyrnukona
María Clausen Pétursdóttir, sundkona

Við óskum íþróttafólkinu innilega til hamingju með árangurinn og Pálma Geir til hamingju með kjörið.

 


Síðast breytt: 9. mars 2021
Getum við bætt efni síðunnar?