Óskaland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Viðbyggingin við Óskaland sem hönnuð er af marimo arkitektum fyrir Hveragerðisbæ og Eik fasteignafélag er nú tilnefnd til Hönnnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður en nýlega vann byggingin hönnunarverðlaun í Eistlandi.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fjallar um málið á heimasíðu sinni: „Að mati dómnefndar skapar hönnun Óskalands hlýlega og efnisríka heild þar sem náttúrulegur viður, hófstillt litanotkun, hljóðdempandi fletir og sérhannaðar innréttingar vinna saman. Hönnun og landslag styðja hvort annað án þess að yfirgnæfa upplifunina, styrkurinn liggur í fjölbreytileika rýmanna og útisvæðisins og þeim möguleikum sem þau skilja eftir fyrir börnin sjálf.“
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaunin verða afhent þann 5. nóvember n.k. í Grósku.
Frétt Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs: https://www.honnunarmidstod.is/ha-frettir/oskaland-tilnefnt-til-honnunarver%C3%B0launa-islands-2026