Fara í efni

Orkuveitan og Orka náttúrunnar (ON) bjóða til opins húss

ORKV ON
ORKV ON

Orkuveitan og Orka náttúrunnar (ON) bjóða til opins húss í sýningaraðstöðunni Gallerí á neðri hæð Ráðhússins í Þorlákshöfn í anddyri bæjarbókasafnsins, fimmtudaginn 5. júní kl. 16-18 til að kynna umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra vinnslu- og rannsóknarborana í Hverahlíð II og Meitlum.

https://www.orkuveitan.is/rannsoknar-og-vinnsluholur-i-hverahlid-og-meitlum/

Hægt er kynna sér umhverfismatsskýrsluna og setja fram athugasemdir og ábendingar á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1005. Bent er á að umsagnarfrestur almennings og hagsmunaaðila er til 23. júní 2025.

Öll áhugasöm eru hvött til að mæta á opið hús og kynna sér fyrirhugaðar framkvæmdir og verður starfsfólk bæði Orkuveitunnar og ON á staðnum til að svara spurningum.


Síðast breytt: 3. júní 2025
Getum við bætt efni síðunnar?