Fara í efni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2023

Mynd/ SASS
Mynd/ SASS

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2023. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Hveragerðisbær hvetur áhugasama bæjarbúa til að sækja um. 

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.

Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun. Byggðaþróunarfulltrúar SASS eru staðsettir víða á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf. Við hvetjum Sunnlendinga til að nýta sér þessa þjónustu. Hvort sem er nú í tengslum við Uppbyggingarsjóð eða á öðrum tíma ársins í tengslum við önnur verkefni er tengjast atvinnuþróun, nýsköpun eða menningu. Við bendum einnig á ráðgjafasíðu SASS, þar sem er að finna upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknarskrif.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum og þarf að hafa lögheimili á Suðurlandi. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki persónulegum aðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.

Kynningarfundur um sjóðinn verður haldinn á Teams þriðjudaginn 12. september kl. 12:15. Viðburðinn má finna á samfélagsmiðlum hér. Hlekk á Teams fundinn er að finna hér.

Hægt er að kynna sér sjóðinn nánar á heimasíðunni www.sass.is/uppbyggingarsjodur

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 3. október 2023.

Ráðgjafar SASS
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita ráðgjafaþjónustu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Þjónustan er gjaldfrjáls upp að ákveðnu marki. Gjaldfrjáls þjónusta miðast við almanaksárið og er allt að 7 klukkustundir fyrir einstaklinga og fyrirtæki og allt að 20 klukkustundir fyrir stofnanir.

Hægt er að nálgast upplýsingar um ráðgjöf SASS á vef þeirra www.sass.is

 


Síðast breytt: 8. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?