Fara í efni

Hótel og mathöll í byggingu

Gróðurhúsið er þrjár hæðir og koma hótelherbergin á efri tveimur hæðunum tilbúin frá Noregi.
Gróðurhúsið er þrjár hæðir og koma hótelherbergin á efri tveimur hæðunum tilbúin frá Noregi.

Í Hveragerði er nú í uppbyggingu nýr og spennandi áningastaður við aðalagötu bæjarins sem ber heitið Gróðurhúsið og er áætluð opnun haustið 2020.  Hafa framkvæmdir á þessum reit vakið nokkra athygli og því er ekki úr vegi að gera grein fyrir þeirri byggingu sem þarna mun rísa og setja mun áberandi svip á aðkomuna inn í bæjarfélagið. 

Samkvæmt upplýsingum frá byggingaraðilum er gert ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi í byggingunni sem þjónusta mun Íslendinga jafnt sem erlenda ferðamenn. Mathöll Suðurlands verður staðsett á jarðhæð hússins og verður í anda hinnar skemmtilegu götubita menningu sem hefur vaxið hratt víða um heim en einnig er stefnt að opnun matarmarkaðar með áherslu á fjölbreytta íslenska framleiðslu. The Greenhouse Hotel opnar á efri hæðum byggingarinnar og býður uppá nýja og nútímalega nálgun fyrir gesti sína. Í byggingunni verður einnig að finna afþreyingu, verslun og ferðaþjónustu með áherslu á nærumhverfið og hið fallega umhverfi Hveragerðisbæjar.

Hveragerði er eina bæjarfélagið á Íslandi sem byggst hefur í kringum þá náttúrulegu auðlind sem jarðhitinn er og á undanförnum áratugum áunnið sér orðspor sem bær heilsu, gróðurs og lista.  Þannig hefur Hveragerði orðið vinsæll og einstakur áningastaður ferðafólks sem sótt hefur í að njóta þessarar sérstöðu.

Það er óhætt að segja að margir hafa fylgst spenntir með framkvæmdum á þessum áberandi stað í bæjarfélaginu og er ekki að efa að þarna muni myndast lifandi  og fjölbreyttur áningastaður fyrir íbúa og aðra gesti Suðurlands  en með þessari viðbót við fjölbreytta flóru afþreyingar og veitingastaða verður Hveragerði enn ákjósanlegri staður fyrir sunnudagsrúntinum og eins þegar Suðurland er sótt heim.

Hér má sjá heimasíðu verkefnisins

Hér má sjá kynningarmyndband um verkefnið. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar

 

 


Síðast breytt: 27. apríl 2020
Getum við bætt efni síðunnar?