Fara í efni

Nýtt aðalskipulag undirritað

Ólafur Árnason frkv.stj. skipulags hjá HMS og Pétur G. Markan bæjarstjóri skrifa undir Aðalskipulagi…
Ólafur Árnason frkv.stj. skipulags hjá HMS og Pétur G. Markan bæjarstjóri skrifa undir Aðalskipulagið

Tímamót voru í vinnu við gerð aðalskipulags Hveragerðisbæjar í dag þegar Ólafur Árnason frkv.stj. skipulags hjá HMS og uppalinn Hvergerðingur mætti á bæjarskrifstofuna til þess að undirrita nýtt aðalskipulag ásamt Pétri Markan bæjarstjóra.

Unnið hefur verið að gerð Aðalskipulags Hveragerðisbæjar 2025-2037 á kjörtímabilinu með þátttöku allra flokka í bæjarstjórn. Aðalskipulagið er unnið á grunni Landsskipulags og eldra aðalskipulags en með nýjum áherslum sem birtast m.a. í sérstökum rammahluta aðalskipulags fyrir miðbæinn og Breiðumörk sem og með gerð samgöngustefnu þar sem umferðaröryggi er sett á oddinn.


Síðast breytt: 16. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?