Fara í efni

Nýtnivikan 2022 – sóun er ekki lengur í tísku!

Evrópska Nýtnivikan
Evrópska Nýtnivikan "Sóun er ekki lengur í tísku"

Dagana 19.-27. nóvember næstkomandi stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Þema ársins er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu Sóun er ekki lengur í tísku! Textíliðnaðurinn er einn sá umfangsmesti í heimi og honum fylgir gríðarleg efnanotkun, ferskvatnsmengun og losun gróðurhúsalofttegunda svo það skiptir miklu að draga úr sóun textíls.

Í tilefni Nýtnivikunnar eru sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, skólar og almenningur hvött til þess að fræðast um umhverfisáhrif textíls og leggja sitt af mörkum til að skapa hringrásarhagkerfi textíls í samfélaginu. Til að mynda er hægt að setja upp fataskiptimarkað á vinnustaðnum og svo er um að gera að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, halda viðgerðarkaffi, fyrirlestra eða hvað eina sem styður við minni sóun.

Umhverfisstofnun hvetjur alla þá sem munu standa fyrir viðburðum eða öðru tengdu Nýtnvikunni í ár að deila því á Facebook síðu Nýtnivikunnar með því að senda skilaboð og þau deila því svo áfram. 

Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið samangegnsoun@samangegsoun.is og munið að taka myndir og tagga #samangegnsoun #nytnivikan #ewwr2022 og nýtnivikuna!

Umhverfisstofnun heldur úti verkefninu Saman gegn sóun og á Facebook, Instagram og heimasíðu verkefnisins má finna upplýsingar um umhverfis- og samfélagsleg áhrif textíliðnaðarins og lausnir við þeim vanda sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir.


Síðast breytt: 18. nóvember 2022
Getum við bætt efni síðunnar?