Fara í efni

Nýr kortagrunnur tekinn í notkun

Nýr og notendavænni kortagrunnur hefur verið tekinn í notkun. Kortagrunnurinn er hugsaður íbúum til upplýsingaöflunar. Á vefnum er hægt að skoða teikningar af húsum, lagnaleiðir, lóðablöð, upplýsingar um grasslátt og einnig er hægt mæla með auðveldum hætti lengd gönguleiða og fjarlægðir milli bæjarhluta.

Á kortagrunninum er hægt að finna ýmsar þekjur, þar sem hakað er við þær upplýsingar sem leitað er eftir á mismunandi bakgrunnum. Eins er að finna gömul og ný verkfæri til að vinna með í kortagrunninum, þar sem m.a. er hægt að bera saman nýjar og gamlar loftmyndir af Hveragerði, mæla vegalengdir og skoða íbúatölur og tölfræði ársins, svo eitthvað sé nefnt. 

Kortagrunnur Hveragerði


Síðast breytt: 10. september 2025
Getum við bætt efni síðunnar?