Nám fyrir fullorðna
02.09
Frétt
Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi býður í haust upp á fjölbreytt nám fyrir fullorðna og íslenskunámskeið víða um Suðurland. Markmið námsins er að efla tækifæri íbúa til starfsþróunar, styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði og undirbúa þá fyrir frekara nám.
Meðal þess náms sem boðið verður upp á eru:
- Fagnám í félags- og heilbrigðisþjónustu
- Félagsliðagátt
- Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar
- Menntastoðir
Jafnframt verða íslenskunámskeið í boði á nokkrum stöðum á Suðurlandi, meðal annars í Hveragerði, Þorlákshöfn, Selfossi, Hellu, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn, auk fjarnáms.
Nánari upplýsingar í mynd til hægri à
Síðast breytt: 2. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?