Fara í efni

Menningarverðlaun Hveragerðisbæjar 2023

Menningar, íþrótta og frístundanefnd veitti á dögunum Unni Birnu Björnsdóttur og Sigurgeir Skafta Flosasyni menningarverðlaun Hveragerðisbæjar. 

Unnur Birna Björnsdóttir fiðluleikari og söngvari hefur komið fram á hinum ýmsu hátíðum í Hveragerði, haldið marga tónleika í bænum og verið við hinar ýmsu athafnir í Hveragerðiskirkju. Hún stjórnar barnakór Hveragerðiskirkju og eins hefur hún verið kórstjóri Söngsveitar Hveragerðis.

Sigurgeir Skafti Flosason bassaleikari og hljóðkerfastjórnandi hefur komið fram á hinum ýmsu hátíðum í Hveragerði með Unni Birnu unnustu sinni. Hann hefur verið frumkvöðull og framkvæmdastjóri hátíðarinnar Allt í blóma sem haldin hefur verið undanfarin ár í Hveragerði.

Saman hefur parið eflt mikið tónlistarlíf í Hveragerði og verður gaman að fylgjast með komandi verkefnum hjá þeim.

Við óskum þeim til hamingju!


Síðast breytt: 29. júní 2023
Getum við bætt efni síðunnar?