Fara í efni

Lokað fyrir kalt vatn í Heiðarbrún

Föstudaginn 30. Október klukkan 10:00 verður lokað fyrir kalda vatnið í hluta Heiðarbrúnar vegna viðhaldsvinnu. Gert er ráð fyrir að kaldavatnsleysið geti varað í allt að klukkutíma en stendur vonandi skemur.

Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

  • Athugið að skrúfa fyrir krana með köldu vatni áður en vatn er tekið af.
  • Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
  • Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
  • Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.

Vatnsveita Hveragerðisbæjar


Síðast breytt: 29. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?