Loftslagsstefna Hveragerðisbæjar samþykkt
Markmið stefnunnar er að móta farveg Hveragerðisbæjar í átt að minni losun gróðurhúsalofttegunda og leiða sveitarfélagið í átt að sjálfbærri þróun. Heimsmarkmiðin
munu veita stefnunni utanumhald og er hún unnin innan ramma þeirra. Þetta markmið fellur vel að meginmarkmiði þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036 sem samþykkt var á Alþingi 15. júní 2022 um að byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær.
Stefnan er unnin í samvinnu við Samtök Sunnlenskra Sveitarfélaga (SASS). Settur var saman vinnuhópur sem í áttu sæti fulltrúar frá öllum stofnunum Hveragerðisbæjar ásamt bæjarstjórn og fulltrúum frá nefndum Hveragerðisbæjar. Loftslagsstefnan byggir á vinnu framangreindra aðila að mótun nýrrar framtíðarsýnar um aðgerðir og verkefni sem hafa það að markmiði að draga úr losun samfélagsins á gróðurhúsalofttegundum.
Loftslagsstefnan var samþykkt á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Hveragerðisbæjar 1. apríl 2025 og á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar 8. maí 2025.
Í stefnunni er tekið mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun