Fara í efni

Lífshlaupið 2021 hefst 3. febrúar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2021 hefst 3. febrúar. Skráning er hafin.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 3. febrúar – 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Lífshlaupið

Eins og ávallt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finn hér og undir viðeigandi keppni vinstra megin.

Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag. Einnig er einfalt að ná í hreyfinguna sína úr Strava.

Inni á vef Hveragerðisbæjar eru hugmyndir af hinum ýmsu gögnuleiðum.

 


Síðast breytt: 28. janúar 2021
Getum við bætt efni síðunnar?