Fara í efni

Leigufélagið Bríet og Hveragerðisbær óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða.

Leigufélagið Bríet stefnir á að kaupa hagkvæmar íbúðir til útleigu í Hveragerði og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs.

Upplýsingar um verkefni eða áhuga á samstarfi skal senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal frekari gögnum skilað fyrir föstudaginn 9. apríl 2021.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is).

 

 


Síðast breytt: 11. mars 2021
Getum við bætt efni síðunnar?