Laust starf sem frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Bungubrekka leitar að frístundaleiðbeinanda sem brennur fyrir starfi með börnum og ungmennum. Starfið felst í að bjóða upp á fjölbreytt og innihaldsríkt frístunda- og tómstundastarf í öruggu og skapandi umhverfi þar sem frjáls leikur, val og þátttaka eru í fyrirrúmi.
Markmið starfsins er að efla sjálfstraust og félagsfærni barna og tryggja öllum jafna aðkomu að
starfi án aðgreiningar.
Helstu verkefni og ábyrgð
● Undirbúningur og framkvæmd frístundastarfs og tiltekt að starfi loknu
● Leiðbeina börnum og tryggja þátttöku þeirra með styrkleika þeirra að leiðarljósi
● Hvetja til leiks, sköpunar og hreyfingar
● Stuðla að jákvæðu og öruggu félagsumhverfi
● Veita stuðning í samskiptum, úrlausnum ágreininga og tilfinningalegri úrvinnslu
● Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum, svo sem að stýra smiðjum eða fylgja eftir
viðveru og mætingu
● Skipuleggja minni viðburði, smiðjur og klúbba í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur
● Reynsla af starfi með börnum frá 6-9 ára er kostur
● Góð samskipta- og samvinnuhæfni
● Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
● Sveigjanleiki og hjálpsemi
● Þolinmæði og umhyggja í starfi með börnum
● Hæfni til að lesa í aðstæður og skapa traust
● Virðing fyrir einstaklingum, skoðunum og upplifun þeirra
● Tæknilæsi eða vilji til að nýta tækni í starfi
● Hreint sakavottorð
Við bjóðum
● Fjölbreytt og skapandi starf í lifandi umhverfi
● Sterkt teymi samstarfsfólks og góðan stuðning frá yfirmanni
● 50% starfshlutfall
● Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf barna og ungmenna í Hveragerði
● Stytting vinnuvikunnar
Umsóknum verður svarað jafnóðum og þær berast og gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar ásamt ferilskrá og
kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar veitir Liljar Mar Pétursson forstöðumaður frístundamála í gegnum netfangið
liljar@hvg.is.