Laust starf í Grunnskóla Hvergerðis
Grunnskólinn í Hveragerði leitar að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026–2027.
Kjarni starfsins er að aðstoða nemendur sem þurfa sérstakan stuðning og vinna náið með kennurum að því að auka færni, sjálfstæði og félagslega þátttöku nemenda í skólastarfinu.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 480 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk.
Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Umsóknarfrestur er til 8. júní. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti: saevar@hveragerdi.is