Fara í efni

Kristján Valdimarsson var kjörinn íþróttamaður Hamars 2022

Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars sem haldinn var 26. mars sl. voru veittar viðurkenningar fyrir íþróttamenn deilda ásamt því að krýna íþróttamann Hamars.
 
Kristján Valdimarsson var kjörinn íþróttamaður Hamars og blakmaður Hamars.
Úlfur Þórhallsson er badmintonmaður Hamars.
Ragnar Nathanielsson er körfuknattleiksmaður Hamars.
Ísak Sindri Danielsson Martin er knattspyrnumaður Hamars.
 
Við óskum þessu frábæra íþróttafólki til hamingju með útnefninguna.
 
Áfram Hamar

Síðast breytt: 28. mars 2023
Getum við bætt efni síðunnar?