Fara í efni

Kjörfundur í Hveragerði

Kjörfundur vegna forsetakosninga laugardaginn 27. júní 2020 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk.

Gengið er inn um aðalinngang, vestanmegin.

Sérstök athygli skal vakin á eftirfarandi:
Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Þá er ekki heimilt að vera með áróður á eða við kjörstað meðan á kjörfundi stendur svo sem barmmerki og/eða merkingar á bifreiðum.

Frá kl 13:00 til kl 17:00 verða tvær kjördeildir opnar.
Í kjördeild 1 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá A-J og í kjördeild 2 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá K-Ö.

Hveragerði maí 2020
Kjörstjórnin í Hveragerði.

 


Síðast breytt: 19. júní 2020
Getum við bætt efni síðunnar?