Fara í efni

Jólaskreytingar

Jólatímabilið er byrjað hjá garðyrkjudeildinni og áhaldahúsinu. Nú eru verkefnin m.a. að yfirfara seríur og skraut ásamt því að föndra eitthvað nýtt. 

Það verður sett nýtt skraut á hluta af ljósastaurunum á Breiðumörk sem verður gaman fyrir íbúa að fylgjast með. Byrjað verður að setja seríur og skraut upp á næstu vikum.  


Síðast breytt: 27. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?