Fara í efni

Innbrot í Hveragarðinn

Hveragarðurinn
Hveragarðurinn

Síðastliðna nótt var brotist inn í þjónustuhúsið í Hveragarðinum og verðmætum stolið. Hurðin hefur verið spennt upp og skemmd, tölvum, peningum og minjagripum stolið.

Aðfararnótt sl. þriðjudags var einnig farið inn í garðinn og þá var brauði stolið sem var að bakast í gufupotti úti í garðinum. Þeir aðilar sem þá voru á ferðinni skildu eftir sig bakpoka fullan af verðmætum verkfærum sem talið er að sé þýfi annars staðar frá.

Ef þið hafið orðið vör við umgang eða séð einhvern á ferðinni um garðinn þessar tvær nætur, vinsamlegast látið lögregluna vita.


Síðast breytt: 5. október 2023
Getum við bætt efni síðunnar?