Fara í efni

Hveragerðisbær harmar uppsagnir starfsfólks Grundar og á dvalarheimilinu Ási.

Að mjög svo gefnu tilefni:

Í ljósi atburða gærdagsins og þeirra sorglegu frétta af fjöldauppsögnum starfsfólks Grundarheimilanna, vill Hveragerðisbær koma því á framfæri að bærinn harmar mjög þessar uppsagnir og skorum við á forsvarsmenn Grundarheimilanna að endurskoða þær.

Ég hef óskað eftir fundi með Óttari Karli, forstjóra Grundar þar sem farið verður yfir málið og þessi ömurlegu tíðindi.

Geir Sveinsson

Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 29. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?