Fara í efni

Sérfræðingur í stuðningsþjónustu óskast

Hveragerðisbær auglýsir stöðu sérfræðings í stuðningsþjónustu á velferðarsviði.

Sérfræðingur í stuðningsþjónustu ber ábyrgð á velferðarúrræði sem getur t.d. falið í sér tilsjón á heimilum eða margþætta aðstoð og stuðning við notendur þjónustu, með valdeflingu og virkni að leiðarljósi. Starfsmaður getur þurft að stýra öðru starfsfólki og útdeila verkefnum til þeirra í samráði við næsta yfirmann. Staðan inniheldur einnig ábyrgð á nýliðafræðslu og þjálfun í sértækri stuðningsþjónustu. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning og þverfaglegt samstarf sem stuðlar að bættri líðan og aukinnar virkni barna, ungmenna og fullorðinna upp að 59 ára aldri. Sérfræðingur í stuðningsþjónustu kemur einnig að þróun og framtíðarsýn á velferðarúrræði fyrir einstaklinga með stuðningsþarfir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skráningar og skipulag á starfseminni
  • Þróun og umbætur á þjónustunni
  • Tengja notendur við viðeigandi úrræði
  • Samskipti við aðra fagaðila og viðeigandi teymi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem þroskaþjálfun, sálfræði eða iðjuþjálfun
  • Þekking og reynsla af skjalavörslukerfinu OneCRM
  • Færni til að túlka flóknar upplýsingar og vinna að langtímaáætlun
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Frumkvæði
  • Umsækjandi skal hafa góða íslensku og ensku kunnáttu
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi

Um er að ræða 60-70% starf. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2026.

Hreint sakavottorð er skilyrði

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veita Erna H. Solveigardóttir sviðstjóri: erna@hveragerdi.is og/eða Kolbrún Tanja Eggertsdóttir forstöðumaður stuðningsþjónustu: kolbruntanja@hveragerdi.is

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.


Síðast breytt: 19. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?