Fara í efni

Hendum flugeldaruslinu!

Nú eftir áramótin er mikið af flugeldarusli út um allan bæinn. Þar sem hefur snjóað ansi mikið sést þetta oft illa og hafa starfsmenn í snjómokstri orðið mikið varir við að flugeldaruslið mokast um með snjónum. Það er frekar leiðinlegt að sjá þetta koma undan sköflunum þegar snjóa leysir svo íbúar eru eindregið hvattir til að fjarlægja og henda því flugeldarusli sem þeir verða varir við. Hægt er að losa sig við flugeldarusl á gámasvæðið eða í gráu tunnuna.

Umhverfisfulltrúi


Síðast breytt: 2. janúar 2023
Getum við bætt efni síðunnar?