Heimsókn forsetahjónanna á afmælisdegi bæjarins - myndir
Það var mikill gleðidagur þegar forsetahjónin, frú Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, komu í opinbera heimsókn í Hveragerðisbæ á afmæli bæjarins þann 29. apríl síðastliðinn.
Tekið var á móti hjónunum í Smágörðunum þar sem þau gróðursettu tré í nýjum lundi sem hefur fengið nafnið ,,Höllulundur" og er lokaverkefni útskriftarnemar Garðyrkjuskólans að Reykjum. Eldri borgurum var sérstaklega boðið að vera viðstaddir í Smágörðunum og mætti töluverður fjöldi þangað.
Næst á dagskránni var að heimsækja Reykjaböðin sem eru í byggingu á Árhólmasvæðinu uppi í Dal. Þar tóku eigendur og framkvæmdastjóri á móti forsetahjónunum og bæjarstjórn og kynntu fyrirhugað baðlón fyrir hópnum.
Þá var förinni heitið að Hjúkrunarheimilinu Ási. Þar voru góðar móttökur heimilisfólks og stjórnenda sem buðu upp á morgunhressingu.
Börnin í skólum bæjarins tóku svo syngjandi á móti forsetahjónunum í Lystigarðinum við undirleik og stjórn Magnúsar Kjartans. Falleg stund í garðinum þar sem Hveragerðislagið ,,Hveragerði er okkur allt" var sungið hástöfum. Forseti ávarpaði börnin og átti við þau samtal.
Loks var hátíðarathöfn á Hótel Örk þar sem forsetahjónunum var þakkað fyrir að heimsækja bæinn á þessum tímamótum. Forseta var fært handverk eftir Hrönn Waltersdóttur og blómvöndur en Hveragerðisbæ gaf forseti mynd af Sveini Björnssyni, fyrsta forseta lýðveldisins, ásamt eiginkonu hans Georgíu Björnsson. Myndin er af þeim hjónum sitjandi á bekk í Hveragerði um miðja síðustu öld.
Við tók svo hátíðarfundur bæjarstjórnar þar sem eina málið á dagskrá var tillaga um að Vilhjálmur Roe yrði gerður að heiðursborgara Hveragerðisbæjar og var hann heiðraður að fundinum loknum.
Að loknum veitingum og almennu spjalli viðstaddra kvöddu forsetahjónin og héldu heim á leið.
Hveragerðisbær þakkar forsetahjónunum og öðrum sem tóku þátt í deginum fyrir samveruna.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af heimsókninni en það var Róbert Arnar sem tók myndirnar.