Fara í efni

Heilsuefling 60+ í Hveragerði

Hveragerðisbær vill minna á heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri sem er í boði í Hamarsporti - í kjallara íþróttahússins við Skólamörk 2 (áður Hengill). 
Tímar eru á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum frá kl. 13:30 - 14:30 og kennari er Berglind Elíasdóttir íþróttafræðingur. 

Er þetta í samstarfi við Hamar og Hveragerðisbæ og hvetjum við íbúa til þess að nýta sér þessa tíma sér til heilsueflingar. 


Síðast breytt: 30. janúar 2024
Getum við bætt efni síðunnar?