Fara í efni

Hamar í úrvalsdeild karla í körfubolta

Hamar tryggði sér sæti í Subway-deild karla eftir spennandi sigur í leik á móti Skallagrími frá Borganesi. 

Úrslitin urðu ekki ljós fyrir en á loka mínutum þegar Hamarsmenn tryggðu sér sigur 93-81. Hamarsmenn hafa undafarin ár verið í toppbaráttu 1. deildarinnar og oft komist mjög nálægt því að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni og  urðu því gríðarleg fagnaðarlæti þegar ljóst var að þeir sigruðu leikinn.

Til hamingju Hamar með frábæran árangur!


Síðast breytt: 25. apríl 2023
Getum við bætt efni síðunnar?