Fara í efni

Hágildi brennisteinsvetnis

Starfsmenn Hveragerðisbæjar leituðust eftir skýringum frá Veitum eftir að hár toppur í brennisteinsvetni á mælum Veitna mældist við Finnmörk síðastliðinn mánudag. Þetta var af völdum óhagstæðs veðurs með tilliti til loftgæða. Það var mjög stillt og kalt veður sem veldur hitahvarfi og lítilli dreifingu á brennisteinsvetni svo að það slæðist með jörðu í þá átt sem vindur blæs og getur safnast upp við staðbundnar uppsprettur. Lofthreinsibúnaður Hellisheiðavirkjun var í fullum gangi í gær og hefur verið nánast allan febrúar og var þetta því með öllum líkindum ekki að koma frá þeim, mögulega frá Nesjavallavirkjun. Það voru norðlægar áttir við Nesjavallavirkjun en frekar hægur vindur svo að brennisteinsvetni gæti alveg hafa verið að berast þaðan til Hveragerðis. 


Síðast breytt: 17. febrúar 2026
Getum við bætt efni síðunnar?