Grunnskólinn í Hveragerði óskar eftir starfsmanni
12.05
Laus störf
Grunnskólinn í Hveragerði leitar eftir þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa.
Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi.Í skólanum eru um 480 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.
Umsóknarfrestur er til 25. maí. Frekari uppslýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstorðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti: saevar@hveragerdi.is
Frekari upplýsingar á mynd til hægri.
Síðast breytt: 12. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?