Gleði og fjör á 17. júní í Hveragerði
Það var þétt dagskrá á 17. júní í Hveragerði í gær en dagskráin hófst klukkan 10 með opnun sýningar í Laugaskarði um sögu sundlaugarinnar. Á sama tíma var verið að teyma undir börnum hjá hestamannafélaginu Ljúfi á Vorsabæjarvöllum.
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar á árinu þá var Laugaspaugið endurvakið í Sundlauginni Laugaskarði. Keppendur frá CrossFit deild, körfuknattleiksdeild og blakdeild Hamars áttust þar við í ýmsum þrautum eins og boðsundi, koddaslag og reipitogi undir stjórn sunddeildar Hamars.
Skífuvinafélagið gekk upp að skífu í sparifötunum og tók sig vel út á toppnum. 
Þriðja árið í röð hittust þau sem klædd voru þjóðbúningum í Varmahlíðarhúsinu í kaffi áður en haldið var yfir í Lystigarð þar sem hópurinn stendur heiðursvörð við innganginn og tekur þar á móti því fólki sem kemur með skrúðgöngunni. Skemmtileg hefð sem er að skapast í kringum þjóðbúningana á þjóðhátíðardeginum hér í Hveragerði.
Frábær mæting var í skrúðgönguna en þar fóru fremstir hestamenn og fákar frá Hestamannafélaginu Ljúfi, þar á eftir gengu skátar frá skátafélaginu Stróki og loks prúðbúnir bæjarbúar og gestir.
Í Lystigarðinum hófst dagskráin með hugvekju frá sr. Salvari Geir Guðgeirssyni, þá flutti María Rún Þorsteinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, ávarp og Þórhildur Sara Jónasdóttir nýstúdent flutti hátíðarræðu. Söngsveit Hveragerðis söng undir stjórn Margrétar Stefánsdóttur og kynnir var Hafsteinn Þór.
Fjallkonan var Matthea Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri Grunnskólans í Hveragerði. Hún flutti ljóð eftir Þórarin Eldjárn, Vorsöngur Ídu. 
Menningarverðlaun Hveragerðis 2026 hlutu Jónas Sigurðsson og Áslaug Hanna Baldursdóttir, eigendur Blómaborgar, fyrir að hafa skapað lifandi vettvang fyrir menningu og mannlíf í verslun sinni.
Leikfélag Hveragerðis mætti á svæðið og flutti atriði úr Ávaxtakörfunni og á eftir þeim skemmtu Karíus og Baktus viðstöddum með leik og söng. Perurnar úr Ávaxtakörfunni stýrðu svo limbói með krökkunum þar til tónlistarmaðurinn Jón Jónsson mætti á svið og lokaði formlegri hátíðardagskrá dagsins með söng.
Boðið var upp á 8 metra afmælistertu í tilefni af 80 ára afmæli bæjarins. Kakan kom frá Almari bakara og var skreytt með myndum frá mismunandi tímum og tilefnum í sögu bæjarins. Bæjarfulltrúar skáru kökuna og útdeildu til gesta.
Handverk og hugvit bauð upp á fjársjóðsleit í Lystigarðinum og nágrenni hans en félagið hafði falið 109 gjafir (fjársjóði) á svæðinu og mátti sá eiga sem fann fjársjóðina.
Slökkviliðið var með sápurennibrautina í brekkunni bakvið sviðið í Lystigarðinum og hoppukastalar voru í skeifunni. Það var því mikið fjör í Lystigarðinum á þjóðhátíðardegi Íslendinga í Hveragerði. 
Að lokinni hátíðardagskrá var sundlaugarpartý Laugaskarði með DJ Atla Kanil og streetball mót við grunnskólann á vegum körfuknattleiksdeildar Hamars.
Hveragerðisbær þakkar fyrir þátttökuna í vel heppnuðum og ánægjulegum þjóðhátíðardegi.