Fara í efni

Gatnagerð í Hólmabrún og Þelamörk að hefjast

Jón Friðrik Matthíasson, byggingafulltrúi, Hörður Úlfarsson frá Gröfutækni og Aldís Hafsteinsdóttir,…
Jón Friðrik Matthíasson, byggingafulltrúi, Hörður Úlfarsson frá Gröfutækni og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri við undirritun verksamnings.

Opnun tilboða í verkið - Hólmabrún/Þelamörk, gatnagerð fór fram þann 26. janúar 2022.  Alls bárus sjö tilboð í verkið.
Lægsta tilboð átti fyrirtækið Gröfutækni ehf sem staðsett er á Flúðum.  Tilboð þeirra hljóðaði uppá  235.995.150,- sem er 82% af kostnaðaráætlun.  Bæjarstjórn hefur samþykkt tilboðið og munu framkvæmdir væntanlega hefjast í mars.   Skil á fyrsta áfanga er þann 15. október 2022 en verkinu skal að fullu lokið þann 15. júní 2023.  Með áfangaskiptum skilum verður mögulegt að úthluta lóðum við Hólmabrún í vor og gefst þá lóðarhöfum nægjanlegur tími til að undirbúa framkvæmdir sem geta þá hafist  þegar lóðir verða byggingahæfar í október. 

Hér má sjá deiliskipulag af hverfinu .  Með þessari framkvæmd má segja að lokahnykkur á uppbyggingu í austur hluta bæjarins sé farinn í gang en framkvæmdin nú felst í lagningu Þelamerkur frá Leikskólanum Undralandi og niður á Sunnumörk auk Hólmabrúnar og umfangsmikillar vinnu við fráveitu á svæðinu.   Á sama tíma er fyrirtækið Loftorka nú að leggja Sunumörk frá Dalsbrún að Ölfusborgum með nýrri brú yfir Varmá.   
Það er ánægjulegt að nú skuli þessir áfangar allir vera farnir af stað en þessar framkvæmdir munu gjörbylta aðkomu og vegakerfi bæjarins. 

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri. 


Síðast breytt: 10. febrúar 2022
Getum við bætt efni síðunnar?