Fara í efni

Fyrri úthlutun leikskólavistunar fyrir haustið 2026.

Í dag 11. maí og á morgun 12. maí mun foreldrum þeirra barna sem úthlutað hefur verið leikskólaplássum í fyrri úthlutun, berast póstur á island.is.

Foreldrar eru beðnir um að bregast fljótt við svo hægt verði að vinna úr þeim upplýsingum sem berast og hefja seinni úthlutun.

Stefnt er að því að seinni úthlutun ljúki fyrir 22. maí 2026.

Hlökkum til komandi samstarfs.
Elfa Birkisdóttir,
deildarstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs


Síðast breytt: 11. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?