Fara í efni

Frítt í strætó - Bíllausi dagurinn 22. september

Mynd/Vegagerðin
Mynd/Vegagerðin

Á bíllausa daginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem er frá 16. - 22. september.

Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt í Strætó á milli byggðarlaga fyrsta sinn.

Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.

Sjá leiðarnet landsbyggðarstrætó:


Síðast breytt: 19. september 2023
Getum við bætt efni síðunnar?