Fræðsludagur starfsfólks skóla- og frístundastarfs
Fimmtudaginn 14. ágúst síðastliðinn kom starfsfólk skóla- og frístundastarfs saman á fræðsludegi þar sem lögð var áhersla á faglega þróun, mannauðsmál og vellíðan starfsfólks.
Aðalfyrirlestur dagsins flutti Dr. Eva Harðardóttir sem fjallaði um inngildingu og mikilvægi þess að skapa umhverfi þar sem allir upplifa sig velkomna. Í erindi sínu hvatti hún fundargesti til að stíga markviss skref í átt að inngildandi starfsháttum og að skapa vettvang þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín og taka þátt á eigin forsendum.
Að loknum fyrirlestri tóku þátttakendur þátt í vinnustöðvum mannauðsmála þar sem kynnt voru ýmis verkfæri fyrir starfsfólk og stjórnendur hjá Hveragerðisbæ. Jafnframt var farið yfir þróun og áherslur í mannauðsmálum með það að markmiði að efla stuðning, starfsánægju og faglegt starf innan vinnustaðanna.
Í lok dags flutti Kristján Hafþórsson hvetjandi erindi. Hann minnti okkur á mikilvægi jákvæðs viðhorfs, gleði og þess að það er fullkomlega í lagi að vera mannlegur og finna fyrir kvíða, óvissu eða þreytu. Það stóð eftir hvað það er gott að minna sig á að það sé alltaf von og hvers mikilvægt það er að halda fast í hana í lífi og starfi.
Þetta var góður dagur með flottum hóp starfsmanna Hveragerðisbæjar. Dagurinn gaf starfsfólki tækifæri til að efla þekkingu sína, styrkja tengsl og stíga fyrstu skrefin inn í nýtt starfsár.
Dagskrá fræðsludagsins má sjá hér að neðan og einnig orðaský yfir það sem fundargestum þótti einkenna orðið inngilding má sjá á mynd til hægri.
