Fara í efni

Forvarnardagurinn 2023

Miðvikudaginn 4. október 2023 verður Forvarnardagurinn haldinn í átjánda sinn í grunnskólum landsins og í þrettánda sinn í framhaldsskólum.
Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðrir samstarfsaðilar að Forvarnardeginum eru Embætti landlæknis, sem sér um verkefnisstjórn dagsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Samfés, Heimili og skóli – landssamtök foreldra, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátar, Rannsóknir og greining, Planet Youth, og SAFF- Samstarf félagasamtaka í forvörnum.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Dagskrá í tengslum við Forvarnardaginn snýst um að nemendur ræði meðal annars um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og skipulagt íþrótta- og tómstundastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áhættuhegðun.

Markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki og fræða þau um hvernig þau geti hugað að sinni vellíðan. Á heimasíðu Forvarnardagsins er meðal annars að finna fróðleik og myndbönd um forvarnir www.forvarnardagur.is, þar er einnig að finna þá grunn- og framhaldsskóla sem hafa skráð sig til þátttöku.

Allir sem koma að málefnum barna og ungmenna á einn eða annan hátt eru hvattir til halda gildum forvarnardagsins á lofti og fylgjast vel með starfsemi grunn- og framhaldsskóla þennan dag og/eða í október, eftir því sem við á, með áherslu á fyrrgreinda árganga. Til dæmis með því að virkja fjölmiðla á svæðinu. Grunn- og framhaldsskólar eru sérstaklega hvattir til að finna leiðir til að leyfa fulltrúum nærsamfélagsins að fylgjast með verkefnum Forvarnardagsins sem unnin verða í skólunum. Einnig verða viðburðir og skilaboð í myndbandsformi á vegum samstarfsaðila Forvarnardagsins þar sem verður umfjöllun um frítímann, foreldrasamstarf og raddir ungmenna fá að heyrast, í samstarfi við Samfés.

Höfum í huga að forvarnir er viðvarandi verkefni sem snýr bæði að almenningi og þeim sem bera ábyrgð á samfélagslegum ákvörðunum og stefnumörkun. Minnumst þess hversu góður árangur hefur náðst síðustu tvo áratugi. Þetta starf eflist með samvinnu allra aðila í samfélaginu og er því mikilvægt að styðja við skólana og íþrótta- og tómstundastarfsemi til að sinna forvörnum. Stjórnendur sveitarfélaga og tengiliðir Heilsueflandi samfélaga þar sem það á við eru lykilaðilar til að styðja við slíka samvinnu. Minnt er á að á vef Embætti landlæknis er að finna staðreyndarblað um forvarnir í skólum sem mikilvægt er að hafa til hliðsjónar þegar unnið er að forvörnum.


Síðast breytt: 3. október 2023
Getum við bætt efni síðunnar?