Fara í efni

Forsetaheimsókn á afmælisdegi Hveragerðis

Næstkomandi miðvikudag, þann 29. apríl, verða liðin 80 ár frá stofndegi sveitarfélagsins Hveragerðis og verður afmælisdagurinn haldinn hátíðlegur. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar Björn Skúlason, fagna deginum með bæjarbúum. Dagskráin með forsetahjónunum er nokkuð þétt en hún stendur frá kl. 8:30 að morgni og munu þau yfirgefa bæinn aftur rétt fyrir kl. 13.

Hveragerðisbær hvetur bæjarbúa og fyrirtæki í bænum til að draga íslenska fánann að húni á afmælisdegi bæjarins í tilefni dagsins og heimsóknar forsetahjónanna.

Hvergerðingum öllum er boðið að taka þátt í ákveðnum dagskrárliðum og væri gaman að sjá alla þá sem eiga möguleika á að mæta.

Kl. 8:30 verður tekið á móti forsetahjónunum í Smágörðunum
Þar munu þau gróðursetja reynitré í nýjum lundi sem útskriftarnemar í Garðyrkjuskólanum eru að leggja lokahönd á. Sérstaklega væri gaman að sjá eldri borgara bæjarins á þessum viðburði en allir bæjarbúar eru að sjálfsögðu velkomnir.

Kl. 10:00 athöfn með börnum bæjarins í Lystigarðinum
Börnin úr grunnskólanum ásamt elstu tveimur árgöngum leikskólanna koma saman í Lystigarðinum og mynda töluna 80 fyrir drónamyndatöku. Einnig munu þau syngja fyrir forsetahjónin og bæjarstjórnina Hveragerðislagið ”Hveragerði er okkur allt” eftir Heimi Eyvindarson. Magnús Kjartan leikur undir á gítar og stýrir söngnum. Forsetahjónin koma í Lystigarðinn um kl. 10:30.

Við hvetjum ykkur til að læra lagið og textann og hjálpa börnunum við að leggja lagið á minnið svo söngurinn verði okkur öllum til sóma. Forsetahjónin munu einnig taka undir í söngnum. Hér er hlekkur á lagið á Youtube

Forsetinn ávarpar börnin og aðra gesti í lok þessa viðburðar.

Kl. 11:10 verður hátíðarathöfn á Hótel Örk.

Þar verða ávörp frá forseta Íslands og forseta bæjarstjórnar og hátíðarfundur bæjarstjórnar haldinn en þar verður einungis eitt mál á dagskrá. Að fundinum loknum verður heiðursborgari Hveragerðisbæjar útnefndur í fyrsta sinn. Ánægjulegt væri að sjá sem flesta Hvergerðinga viðstadda á Hótel Örk við þetta tækifæri.

Að lokum verður forsetahjónunum boðið til hádegisverðar í Grunnskólanum í Hveragerði áður en þau halda aftur heim á leið.

Til hamingju með afmælið!


Síðast breytt: 25. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?