Fara í efni

Flugeldasýning í Hveragerði áramót 2020/2021

Flugeldasýning um áramótin – breytt staðsetning

Það er ljóst að áramótin verða öðruvísi hjá okkur í ár í ljósi aðstæðna. Flugeldasýning HSSH verður á nýjum stað, á austanverðum Hamrinum á gamlárskvöld kl. 21:30, sjá mynd. Það er von okkar að sem flestir bæjarbúar sjái sýninguna að heiman til að koma í veg fyrir hópamyndun.

Ára­móta­brenn­ur draga að sér fjölda fólks og viljum við í Hveragerðisbæ sýna ábyrgð í verki og af­lýsa því ára­móta­brenn­u í ár.

Hafið það sem allra best og njótum áramótanna í okkar jólakúlu. :)


Síðast breytt: 29. desember 2020
Getum við bætt efni síðunnar?