Fara í efni

Fáðu þér G-Vítamín!


Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur.  Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“.

Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni. Það er verðmætt að leyfa
sér að gleyma sér. Á heimasíðu G-vítamíns í dag, er að finna lista yfir söfn sem frítt er inn á í dag í samstarfi við Geðhjálp. Þann 10. febrúar verður frítt inn á Listasafn Árnesinga - líkt og alltaf.

Endilega nýtið tækifærið, ef ekki í dag, þá þegar hentar.

Viltu meira G-Vítamín?

Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.


Síðast breytt: 9. febrúar 2021
Getum við bætt efni síðunnar?