Fara í efni

Dagar ehf taka við ræstingum Hveragerðisbæjar

Samningur um ræstingu á stofnunum Hveragerðisbæjar á milli sveitarfélagsins og fyrirtækisins Daga ehf var undirritaður nýverið.  Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs þar sem Dagar ehf lögðu fram lægsta tilboð af þeim 8 aðilum sem buðu í verkið.  Um er að ræða ræstingu á bæjarskrifstofu, Grunnskólanum í Hveragerði, Leikskólanum Óskalandi, Leikskólanum Undralandi, Upplýsingamiðstöðinni og bókasafninu auk ræstingu á húsnæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.   Með góðri niðurstöðu útboðsins er ljóst að Hveragerðisbær mun ná fram umtalsverðri hagræðingu í rekstri en tilboð Daga ehf í ræstinguna nam 20,3 m.kr..

Á meðfylgjandi mynd má sjá Pálmar Óla Magnússon, framkvæmdastjóra Daga ehf, Björk Baldvinsdóttur, sviðsstjóra sölu- og viðskiptaþróunar Daga ehf, Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra og Helgu Kristjánsdóttur skrifstofustjóra við undirritunina. 


Síðast breytt: 5. febrúar 2021
Getum við bætt efni síðunnar?