Blómaborg hlaut menningarverðlaunin 2026
Jónas Sigurðsson og Áslaug Hanna Baldursdóttir í Blómaborg hlutu menningarverðlaun Hveragerðisbæjar árið 2026. Sigmar Karlsson formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar afhenti þeim viðurkenningu við hátíðahöldin á 17. júní í Lystigarðinum.
Jónas Sigurðsson og Áslaug Hanna Baldursdóttir festu kaup á Blómaborg við Breiðumörk undir lok ársins 2022. Frá þeim tíma hafa þau sett sterkan og jákvæðan svip á menningarlíf Hveragerðisbæjar með fjölbreyttum menningarviðburðum, svo sem tónleikum, ljóðalestri, mörkuðum, notalegum kvöldstundum og fjölmörgu öðru sem hefur auðgað samfélagið og skapað vettvang fyrir listir, samveru og sköpun.
Með framtakssemi sinni, eldmóði og metnaði hafa þau orðið mikilvægur hluti af menningarlífi bæjarins og lagt sitt af mörkum til að gera Hveragerði að enn líflegri og fjölbreyttari menningarbæ. Þau eru því sannarlega vel að þessum heiðri komin.
Hjónin fengu afhent verk sem er unnið af Hrönn Waltersdóttur keramikhönnuði og er úr postulíni. Verkinu fylgir eftirfarandi texti: ,,Lótus blómið táknar vöxt, visku og fegurð sem rís upp úr dýpinu. Tónstafurinn minnir á kraft tónlistar og hljóms sem snertir hjörtu og sameinar fólk. Blómið sem opnast til ljósins ber vitni um sköpunargáfu, von og þann innri neista sem lýsir leiðina áfram. Í ljósinu sem hér logar endurspeglast þakklæti fyrir framlag til menningar, lista og mannlegrar ræktar. Megi þetta listaverk minna á tónslist, ljós og kærleikur hafa mátt til að næra, lyfta og tengja okkur hvert öðru."
Til hamingju Blómaborg og takk fyrir ykkar dýrmæta framlag til menningar í Hveragerði.
