Fara í efni

Átak í trjáklippingum á lóðamörkum

Garðyrkjufulltrúi Hveragerðisbæjar vill góðfúslega minna íbúa á að snyrta trjágróður á sínum lóðarmörkum. Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur.

Um þessar mundir er garðyrkjufulltrúinn með átak í trjáklipppingum. Farið verður um allar götur bæjarins og þar sem við á eru garðaeigendur hvattir til að snyrta trjágróður sem uppfylla ekki skilyrði byggingareglugerðar innan 14 daga. Að örðum kosti mun Hveragerðisbær snyrta trén á kostnað garðeigenda.

Það sem þarf að hafa í huga er að:

  • Umferðarmerki verða að vera sýnileg.
  • Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
  • Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um gangstíga
  • Lágmarkshæð gróðurs yfir stígum má ekki vera lægri en 2,8 metrar
  • Gróður má ekki vera neðar en 4,2 metrar á akbraut

Skylda garðeigenda að halda trjágróðri innan lóðarmarka

Byggingarreglugerð setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2 segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.

Hjálpumst að við að halda bænum flottum og auðveldum okkur öllum vinnu og aðgengi.

 

 


Síðast breytt: 30. október 2020
Getum við bætt efni síðunnar?